Viðskipti erlent

Noregur aðstoði við innheimtu

Georg Papandreú
Georg Papandreú
Norska utanríkisráðuneytið á nú í viðræðum við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, ESB, og Grikkland um aðstoð við umbætur í stjórnsýslunni. Eitt þeirra atriða sem ríkisstjórn Georgs Papandreú þarf aðstoð við er innheimta skatts, að því er haft er eftir starfsmanni norska utanríkisráðuneytisins á fréttavef Aftenposten.

Þar er greint frá því að Grikkland sé eina ESB-ríkið þar sem gríðarlegar peningatilfærslur séu ekki skráðar. Algengt hafi verið að neytendur hafi komið með plastpoka fulla af seðlum til að greiða fyrir Porsche-bifreiðar.

Gríska ríkið hefur orðið af gríðarlegum skatttekjum, um 40 milljörðum evra á ári, samkvæmt Efnahags- og framfarastofnuninni. Sérfræðingar hafa bent á að starfsmenn skattayfirvalda séu spilltir. Oft hafi verið hægt að komast upp með skattsvik með því að stinga umslagi með peningum að starfsmönnunum.

Fréttavefur Aftenposten hefur eftir heimildarmanni innan ESB að skattkerfið í Grikklandi sé eins og það var í N-Evrópu fyrir 30 árum. Kerfið bjóði upp á spillingu.

Grísk yfirvöld eru sögð hafa reynt umbætur á kerfinu um langt skeið. Starfsmenn hafi svarað með verkföllum, haft breytingar að engu og hægt á vinnu sinni.- ibs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×