Innlent

Arna ennþá týnd

Arna Sif Þórsdóttir.
Arna Sif Þórsdóttir.
Arna Sif Þórsdóttir er ennþá týnd. Ekkert hefur sést til hennar síðan á fimmtudaginn síðasta, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fjölskylda hennar er orðin mjög uggandi.

Lögreglunni hefur borist fjöldi tilkynninga í kvöld, en þær eru fremur óáreiðanlegar, allar frá fólki sem segist hafa séð Örnu á mánudaginn síðasta og því ekki mikil stoð í þeim.

Arna er grannvaxin, 23 ára, ljóshærð stúlka. Hún er talin íklædd svartri flíspeysu og rauðri peysu þar innan undir.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Örnu eru beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 444-1100.


Tengdar fréttir

Lýst eftir Örnu Sif

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Örnu Sif Þórsdóttur , 23 ára. Talið er að hún sé klædd í svarta flíspeysu og í rauðri flíspeysu innanundir og svartar hlébarðaleggings. Arna er grannvaxin og 169 sm á hæð ljóshærð með fléttur. Síðast er vitað um ferðir hennar í Reykjavík um miðjan dag á sunnudaginn. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Örnu eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×