Innlent

Lögregluaðgerðum lokið í Breiðagerði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Til nokkurra átaka kom á milli lögreglu og Heimavarnarliðsins.
Til nokkurra átaka kom á milli lögreglu og Heimavarnarliðsins. Mynd/ FF og BBI.
Aðgerðum lögreglu í Breiðagerði í Reykjavík er lokið, en þangað var fjölmennt lið lögreglu kallað í morgun þegar um 30 manna hópur frá heimavarnarliðinu kom í veg fyrir að fulltrúi Sýslumannsins í Reykjavík bæri út konu úr húsi í Breiðagerði.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu voru aðgerðirnar stöðvaðar þegar sátt hafði náðst um að því yrði frestað að bera húsráðendur út.

Á meðfylgjandi mynd sést vel að til nokkurra átaka kom á milli lögreglu og fólksins úr Heimavarnarliðinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×