Innlent

Enn berast tilkynningar um barnatæli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Skólastjóri Melaskóla varar við barnatæli.
Skólastjóri Melaskóla varar við barnatæli.
Foreldrar barna í Melaskóla fengu í morgun senda aðvörun frá skólastjóranum um að fullorðinn maður hafi reynt að tæla unga stúlku úr 4. bekk skólans upp í bíl til sín í gærkvöld. Atvikið mun hafa átt sér stað á gatnamótum Neshaga og Hofsvallagötu. Skólastjórinn segir að stúlkan hafi brugðist hárrétt við. Hún svaraði ekki manninum og hjólaði í burtu.

Skólastjórinn segir að samkvæmt lýsingu stúlkunnar telji lögreglan, sem var kölluð til af foreldrum stúlkunnar, að um sama mann geti verið að ræða og reynt hefur slíkt hið sama í Hafnarfirði og á Suðurnesjum síðustu daga og vikur.

Skólastjórinn brýnir það fyrir foreldrum barna að ítreka við börnin hvernig þau eigi að bregðast við slíkum aðstæðum. Á þann hátt er unga stúlkan gerði í gærkvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×