Tollar og vörugjöld verði endurskoðuð 10. desember 2011 05:30 Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um endurskoðun tolla- og vörugjaldakerfis. Fréttablaðið/Vilhelm
Alþingi Sex þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að íslensk vörugjalda- og tollalöggjöf verði tekin til gagngerrar endurskoðunar. Mælst er til þess að skipuð verði fimm manna nefnd með fulltrúum Hagfræðistofnunar, hagsmunaaðila og fjármálaráðherra, með það að markmiði að afnema viðskiptahindranir. Í greinargerð segir að viðmið gildandi laga sé úrelt þar sem neyslumynstur Íslendinga hafi breyst mikið á undanförnum árum. Til dæmis hafi neysla á alifuglakjöti og svínakjöti fjórfaldast frá lokum níunda áratugarins og neysla á osti tvöfaldast. „Hins vegar miðist innflutningskvóti við neyslu áranna 1986 til 1989.“ Þá séu tollabreytingar á landbúnaðarvörum háðar pólitísku mati ráðherra hverju sinni. Í greinargerðinni segir jafnframt að kerfi vörugjalda og tolla sé „frumskógur“ sem mismuni vörutegundum og hafi þannig áhrif á val neytenda og hvetji til verslunarferða til útlanda. Í niðurlagi segir: „Öflug utanríkisverslun er forsenda hagsældar á Íslandi og telja flutningsmenn því mikilvægt að haldið verði áfram á braut aukins viðskiptafrelsis.“- þj
Mest lesið Matráður segir upp á Mánagarði Innlent Segja „fit to fly“ vottorð brjóta gegn siðareglum lækna Innlent Byrja að rukka sérstaklega fyrir ökuskírteini á plasti Innlent Skiluðu meðmælalistum í Hörpu Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Telur ráðningu Jóns í ráðuneytið ekki koma til af góðu Innlent Faðir Dags gagnrýnir Kristrúnu: „Dagur veginn og metinn og léttvægur fundinn“ Innlent Ekkert gaman að heyra að allt sé að fara til fjandans Innlent Trump lék ruslakarl í Wisconsin Erlent Fá greitt 150 þúsund krónum minna en læknar í sömu stöðu Innlent Fleiri fréttir Framboðslisti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi birtur Á ekki von á að þeim fjölgi sem þurfi innlögn vegna E.coli Fækka áramótabrennum í Reykjavík um fjórar Þau skipa framboðslista Pírata í kosningunum Bein útsending: Vítt og breitt um almannavarnamál „Þegar þú liggur yfir þessu dag og nótt þá byrjar þú að þekkja þá“ Máttu ekki hvetja hlunnfarið starfsfólk til að hætta Fá greitt 150 þúsund krónum minna en læknar í sömu stöðu Matráður segir upp á Mánagarði Listum skilað í Hörpu og lokadagur Norðurlandaráðsþings Ekki nauðvörn og fimm ára dómur fyrir manndrápstilraun stendur Eitt barn útskrifað af gjörgæslu Ábyrg framtíð býður bara fram í Reykjavík norður Skiluðu meðmælalistum í Hörpu Telur ráðningu Jóns í ráðuneytið ekki koma til af góðu Lilja Rafney skipar annað sætið á lista Flokks fólksins Þau eru í framboði fyrir Sósíalistaflokkinn Segja „fit to fly“ vottorð brjóta gegn siðareglum lækna Byrja að rukka sérstaklega fyrir ökuskírteini á plasti Ekkert gaman að heyra að allt sé að fara til fjandans Frestur til að skila framboðslistum rennur út í dag Ógnuðu afgreiðslumanni með hníf Faðir Dags gagnrýnir Kristrúnu: „Dagur veginn og metinn og léttvægur fundinn“ „Ég sé bara íhaldssemi hérna“ Skrekkur í lausu lofti vegna verkfalls: „Þetta er út í hött“ Ár frá andláti Ibrahims: „Hann er með okkur í hjarta og alls staðar í kring“ „Flokkarnir urðu skíthræddir“ Flestir treysta Miðflokknum best fyrir málefnum hælisleitenda Fá ekki nauðsynlega þjónustu vegna verkfalls: „Það verður mikið rof á hans þroskaferli“ Húsnæði verði „fyrst og fremst heimili en ekki fjárfestingarvara“ Sjá meira