Innlent

Íslensk börn horfa upp á mæður sínar beittar ofbeldi

Sviðsett mynd úr safni

Leiða má líkur að því að 23 til 27 þúsund konur á Íslandi hafi orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi frá 16 ára aldri. Í niðurstöðum nýrrar rannsóknar kemur fram að rúm 22 prósent íslenskra kvenna hafi orðið fyrir slíku ofbeldi á lífsleiðinni.

Niðurstöðurnar voru kynntar í gær.

Þar kom fram að hjá um 75% svarenda í rannsókninni bjuggu börn á heimilinu við síðasta ofbeldisatvik og um 24% kvennanna töldu að börn hefðu orðið vitni að síðasta ofbeldisatviki.

24% kvennanna töldu að börn hefðu orðið vitni að síðasta ofbeldisatviki.

Í rannsókninni var tekið 3.000 manna slembiúrtak úr þjóðskrá meðal kvenna á aldrinum 18-80 ára á öllu landinu og var svarhlutfallið 73%. Rætt var við konurnar í síma á tímabilinu 22. september-7. desember 2008. Fyrstu niðurstöður könnunarinnar hafa áður verið kynntar. Þá var úrvinnslunni ekki lokið en þær liggja nú fyrir í viðamikilli skýrslu Rannsóknastofnunar Háskóla Íslands í barna- og fjölskylduvernd. Skýrsluhöfundar eru Elísabet Karlsdóttir og Ásdís A. Arnalds.

Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru:

  • Rúm 22% kvennanna sögðust hafa verið beitt ofbeldi í nánu sambandi einhvern tíma frá 16 ára aldri. Þetta jafngildir því að 23-27.000 konur á Íslandi hafi orðið fyrir slíku ofbeldi á lífsleiðinni.
  • Um 20% kvennanna sögðu ofbeldið hafa verið líkamlegt.
  • Rúm 6% kvennanna sögðu ofbeldið hafa verið kynferðislegt.
  • Hlutfallslega fleiri konur sögðust hafa verið beittar ofbeldi af hendi fyrrverandi maka (19%) en núverandi maka (7%).
  • Hlutfallslega fleiri konur sem hafa verið beittar ofbeldi eru fráskildar í dag (51%) en þær sem eru giftar (17%) eða hvorki giftar né fráskildar (18%). Þetta skýrist af því að flestar konur sem beittar eru ofbeldi í nánum samböndum skilja eða fara úr þessum ofbeldissamböndum.
  • Hjá um 75% svarenda bjuggu börn á heimilinu við síðasta ofbeldisatvik og um 24% kvennanna töldu að börn hefðu orðið vitni að síðasta ofbeldisatviki.
  • Milli 1 og 2% kvenna sögðust hafa verið beittar ofbeldi í nánu sambandi undangengna tólf mánuði. Þetta samsvarar því að 1.200-2.300 konur búi við ofbeldi á ári hverju.


Frá þessu er greint á vef velferðarráðuneytisins.

Þar kemur ennfremur fram að konurnar sem beittar höfðu verið ofbeldi kærðu fæstar til lögreglu, eða aðeins13%, en í 4% tilvika fékk lögreglan upplýsingar um ofbeldið á annan hátt. Af þeim konum sem kærðu voru 65% sátt við hvernig lögreglan tók á málinu en um 35% kvennanna voru ósátt.

Konurnar sem ekki kæra til lögreglu nefna fyrir því ýmsar ástæður. Flestar nefna að þeim hafi fundist atvikið smávægilegt, ekki nógu alvarlegt eða ekki hugsað út í að kæra, eða 44%, um 20% segjast hafa tekist á við þetta sjálf, 9,5% að þeim hafi fundist málið skammarlegt/vandræðalegt eða kennt sjálfu sér um og 7,3% nefna ótta við ofbeldismanninn eða ótta við hefnd.

Nánar er fjallað um niðurstöðurnar á vef velferðarráðuneytisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×