Innlent

Dæmdur fyrir vopnað rán í Sunnubúð

Átján ára karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vopnað rán. Maðurinn játaði að hafa farið inn í verslunina Sunnubúð í Reykjavík vopnaður hnífi, ógnað starfsmanni og skipað honum að afhenda sér peninga úr sjóðsvél. Maðurinn hafði á brott með sér 33 þúsund krónur.

Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en ránið átti sér stað í febrúarbyrjun 2010.

Ræninginn hefur ekki áður hlotið refsidóm en við ákvörðun refsingar var horft til þess að hann notaði vopn við ránið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×