Erlent

Japanskir súmókappar riða til falls

Margir af þekktustu súmóglímuköppum Japans hafa verið yfirheyrðir síðustu daga en ásakanir hafa komið fram um að þeir hafi hagrætt úrslitum í þessari þjóðaríþrótt Japans.

Súmókapparnir eru næstum eins og hálfguðir í landinu og því hefur hneykslið vakið gríðarlega athygli og umtal. Ráðherra íþróttamála segist afar áhyggjufullur vegna málsins og næstu stórkeppni hefur verið frestað. Slíkt hefur ekki gerst í 65 ár, eða rétt eftir að seinni heimsstyrjöldinni lauk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×