Erlent

Segja Assange ofsóttann af illgjörnum öfgafemínista

Julian Assange.
Julian Assange.

Sænski saksóknarinn sem vill fá Julian Assange stofnanda Wikileaks framseldan til Svíþjóðar er á móti karlmönnum, ef marka má orð sænsks dómara á eftirlaunum sem gaf vitnisburð sinn í réttarhöldum yfir Assange í London í gær.

Assange berst nú gegn því að verða framseldur til Svíþjóðar þar sem hann hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur konum.

Verjendur hans fengu Britu Sundberg-Witman til að bera vitni í gær þar sem hún sagði að saksóknarinn Marianne Ny væri illgjarn og öfgafullur femínisti. Assange ætti því ekki von á góðu næði saksóknarinn í hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×