Erlent

250 látast í flóðum í Brasilíu

MYND/AP

Það flæðir víðar á suðurhveli jarðar en í Ástralíu því gríðarleg flóð hafa verið í bæjum í Brasilíu nálægt Rio de Janeiro. Rúmlega 250 manns hafa látist í flóðunum en þeim hafa fylgt stórar aurskriður.

Ein slík dró 130 íbúa í bænum Teresopolis í nótt til dauða og í öðrum nálægum bæ létust 107 í nokkrum skriðum. Mikil flóð hafa verið í Brasilíu það sem af er ári og eru þúsundir heimilislausar vegna þeirra. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Teresopolis og er fjölda fólks saknað svo óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×