Innlent

Mótmæla því að börnin séu notuð í tilraunaskyni

Foreldrar barna í Laugarnesskóla eru ósáttir við að ráðist sé að sérstöðu skólans
Foreldrar barna í Laugarnesskóla eru ósáttir við að ráðist sé að sérstöðu skólans Mynd úr safni
„Lærdómur finnsku þjóðarinnar, af þeirra efnahagshruni, var að skera ekki niður í menntakerfinu! Foreldrar barna í Laugarnesskóla krefjast þess að menntayfirvöld starfi faglega, dragi lærdóm af þeirra reynslu, en noti ekki börnin okkar sem í tilraunaskyni," segir í ályktun sem samþykkt var á fjölmennum fundi foreldra í Laugarnesskóla sem haldinn var í morgun.

Fundurinn mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði í menntakerfinu og sameingu skóla. Fullt var út úr dyrum á fundinum þar sem skólastjóri kynnti stöðu mála fyrir næsta skólaár og hvað þyrfti að skera niður. Þetta er þriðja árið í röð þar sem skorið er niður í skólum borgarinnar.

Foreldrar samþykktu meðfylgjandi ályktun með dynjandi lófataki. Þar sagði:

Niðurskurðurinn mun hafa í för með sér mjög fjölmenna bekki þar sem fyrirséð er að ókleift er að framfylgja stefnu Menntayfirvalda um skóla án aðgreiningar. Hann mun því bitna harðast á þeim börnum sem standa utan meðaltalsins og stórlega auka áhættu á lélegri menntun og slæmu sjálfsmati sem kostar samfélag okkar margfalt meira þegar upp er staðið. Niðurskurður sveigjanlegra kennslustunda mun þýða að draga þarf úr eða jafnvel hætta kennslu einhverra verklegra og skapandi greina! Þetta mun einnig bitna harðast á þeim sem erfitt eiga með bóknám en eru sterk á verk- og listasviði. Laugarnesskóli státar af sterkri áralangri hefð í kennslu skapandi greina og hefur alið upp fjöldan allan af skapandi fólki í 75 ára sögu skólans. Fundurinn mótmælir alfarið að ráðist sé svona að sérstöðu skólans!

Almenn ánægja er meðal foreldra og barna með faglegt starf, þjónustu og menningu innan skólans. Fundurinn leggur á það áherslu að sameining menntastofnana verði að vera á faglegum grunni og öruggt mál að hún spari meira en hún kostar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×