Erlent

Stóð í ströngu fyrir árásina

Jared Loughner flúði undan föður sínum og ók yfir á rauðu.fréttablaðið/AP
Jared Loughner flúði undan föður sínum og ók yfir á rauðu.fréttablaðið/AP

 Jared Loughner, byssumaðurinn sem myrti sex manns og særði fjórtán að auki í matvöruverslun í Tucson á laugardag, var stöðvaður af lögreglu fyrir að aka yfir á rauðu ljósi nokkrum klukkustundum áður en hann framdi ódæðið.

Fyrr um daginn reifst hann einnig við föður sinn og flúði undan honum. Foreldrar Loughners sendu frá sér yfirlýsingu á þriðjudag, þar sem þau sögðust miður sín yfir því sem gerðist.

Þingkonan Gabrielle Giffords, sem árásin beindist að, sýnir hæg batamerki þar sem hún liggur meðvitundarlaus á sjúkrahúsi.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×