Erlent

Mannleg mistök orsökuðu lestarslysið

Að minnsta kosti tíu létust og tugir særðust þegar flutningalest og farþegalest skullu saman við þorpið Hordorf, skammt frá Magdeburg í Þýskalandi í gærkvöld.

Talið er líklegast að mannleg mistök hafi orsakað slysið þannig að annar lestarstjóranna hafi hunsað merki um að hann ætti að stöðva lestina. Lestirnar skullu saman á umtalsverðum hraða og var skyggni slæmt á svæðinu. Óttast er að fleiri muni finnast látnir en ekki er búið að bera kennsl á öll líkin.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×