Erlent

Ekkert lát á skálmöldinni í Mexíkó

MYND/AP

Sex létust í skotbardaga í mexíkósku borginni Monterrey í nótt. Tvö glæpagengi tókust á í bardaganum en að sögn lögreglu létust tveir vegfarendur einnig en bardaginn var háður á götu í miðbænum.

Það sem af er þessu ári hafa fjörutíu manns verið drepnir í átökum eiturlyfjagengja, aðeins í þessari einu borg. Rúmlega 30 þúsund manns hafa látið lífið í átökunum í öllu landinu frá byrjun árs 2007.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×