Erlent

Ótrúlegir fiskar sem stökkva ofan í bátinn

Fiskarnir hoppa ofan í bátinn
Fiskarnir hoppa ofan í bátinn Mynd/Youtube.com
Þær eru margar eiginkonurnar sem hafa orðið fyrir vonbrigðum þegar að karlinn kemur til baka úr veiðiferðinni með strákunum án fisks. "Það var ekkert að fá" eða "Sólin skein allan tímann svo fiskurinn var bara í skugganum" hafa einhverjar þeirra eflaust heyrt nokkuð oft.

Í ótrúlegu myndbandi á YouTube má sjá hvernig tveir menn sigla litlum vélknúnum bát í lítilli á í Asíu. Það er svo sem ekki merkilegt eitt og sér, en það sem gerist þegar fiskarnir heyra í vélinni, er ótrúlegt að sjá.

Hvort slíkar ár eru til á Íslandi skal ósagt látið, en það kæmi sér allavega vel í veiðiferðinni með strákunum. Þá væri hægt að eyða enn meiri tíma við grillið og í heitapottinum og eiginkonan væri himinlifandi þegar heim er komið úr veiðiferðinni.

Myndbandið má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×