Sluppu vel eftir 40 metra fall 25. maí 2012 11:00 Fólkið féll um fjörutíu metra niður í fjöruna með þessari gríðarstóru skriðu. mynd/grétar einarsson
Tveir ferðamenn, karl og kona, sluppu ótrúlega vel þegar brún á Lágey Dyrhólaeyjar, sem þau stóðu á, gaf sig um hádegisbil í gær. Þau féllu um 40 metra með skriðu þegar það gerðist, en voru ofan á skriðunni allan tímann. Skriðan féll ofan í Kirkjufjöru, en fjara var þegar slysið varð. Karlinn fótbrotnaði og konan hryggbrotnaði, en að öðru leyti hlutu þau ekki alvarleg meiðsl. Þau voru bæði lögð inn á bæklunardeild Landspítalans eftir viðkomu á bráðamóttökuna. Maðurinn fór í aðgerð vegna fótbrotsins. Konan gat gengið til landvarðar og látið vita af atburðinum. Björgunarsveitarmenn úr björgunarsveitinni Víkverja í Vík kom fólkinu til hjálpar. „Við komust að þeim landleiðina þannig að við þurftum ekki að hífa þau upp,“ sagði Grétar Einarsson björgunarsveitarmaður við Vísi í gær. „Þetta er ekkert annað en kraftaverk. Það er algjörlega ótrúlegt hvað þau sluppu vel,“ sagði hann jafnframt. Fólkið var á merktri gönguleið, en svæðinu hefur nú verið lokað.
Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Erlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Fleiri fréttir Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Sjá meira