Handboltahöllin á ÓL í London má ekki lengur heita Handboltahöllin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. janúar 2012 17:30 Handboltahöllin á ÓL í London. Ólympíuleikvangurinn er í baksýn. Mynd/Nordic Photos/Getty
Handboltahöllin á Ólympíuleikunum í London í sumar hefur fengið nýtt nafn en hún heitir hér eftir Koparkassinn eða "Copper Box". Forráðamenn breska handboltasambandsins eru allt annað en sáttir með nafnabreytinguna og ætla að berjast fyrir því að gamla nafnið fái að halda sér. Nýja nafnið tekur mið af útliti og gerði íþróttahallarinnar en hún tekur 7000 manns í sæti og mun hýsa alla leik í riðlakeppni og átta liða úrslitum handboltakeppni Ólympíuleikanna. Undanúrslit og leikir um sæti fara síðan fram í Körfuboltahöllinni. „Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að fá að halda nafni íþróttarinnar í nafni hússins. Ólympíuleikarnir hafa gefið handboltanum tækifæri til að vaxa og dafna og það bendir allt til þess að svo verði raunin. Við teljum að við eigum allt annað skilið en að missa handboltann úr nafni hallarinnar," sagði Paul Goodwin framkvæmdastjóri breska handboltasambandsins. Handbolti er ekki eina íþróttin á Ólympíuleikunum sem fer fram í höllinni því þar verður einnig keppt í nútímafimmtarþraut sem og í blindrabolta á Ólympíuleikum fatlaðra. Húsið mun síðan hýsa allskyns íþróttir eftir leikana. Íslenska landsliðið í handbolta á enn möguleika á því að komast á Ólympíuleikanna en liðið tekur þátt í forkeppni leikanna í vor.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Átta hlaupa inn í nóttina Sport Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Uppgjörið: HK - Fram 2-1 | Flautumark heldur vonum HK á lífi Íslenski boltinn Uppgjörið: Fylkir - KR 0-1 | KR fagnaði sigri gegn tíu Fylkismönnum Íslenski boltinn Uppgjörið: Haukar - Cocks 35-26 | Haukar fara með gott veganesti til Finnlands Handbolti Skiptar skoðanir á nýju merki Njarðvíkur Körfubolti Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni Fótbolti Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Enski boltinn Fleiri fréttir Stærsta lið Noregs í þrot Uppgjörið: Haukar - Cocks 35-26 | Haukar fara með gott veganesti til Finnlands 23 íslensk mörk þegar Magdeburg vann Leipzig Strákarnir hans Gumma Gumm með fimmta sigurinn í röð Dana Björg markahæst í sigurleik Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Elvar skoraði sex þegar Melsungen fór á toppinn Grótta náði í stig gegn meisturum FH Ýmir dýrmætur í fyrsta sigrinum Fjölnir nálægt því sem Porto tókst ekki en Valskonur á siglingu Guðjón og Elliði fögnuðu áfram eftir Íslandsför Sjáðu ótrúlegt mark Sigvalda í Meistaradeildinni KA og ÍR fögnuðu eftir spennu Orri magnaður í frábærum sigri Kristján rifbeinsbrotnaði: „Fannst þetta klárt rautt spjald“ Aron aftur til Veszprém eftir stormasaman viðskilnað Íslensk upprisa dugði ekki til og Bjarki fagnaði gegn löndum sínum Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 38-27 | Mosfellingar á toppinn með stórsigri Sandra í landsliðinu þremur mánuðum eftir barnsburð Aron Dagur í Kópavoginn Allt jafnt á Ásvöllum Selfoss upp fyrir Stjörnuna Slæmt gengi Magdeburg í Evrópu heldur áfram Óaðfinnanleg Elín Klara skaut Haukum upp í þriðja sætið Uppgjörið: Fram - ÍBV 29-20 | Öruggur heimasigur Landsliðshetjan í áfalli: Ég skelf öll „Stór partur af mér sem persónu“ „Við vorum bara niðurlægðir“ „Æðislegt að sjá svona marga Íslendinga sem halda með okkur“ Þorsteinn Leó: Ég sá að stúkan var hálf blá Sjá meira