Menning

Kormákur og Skjöldur fengu Menningarverðlaun DV

Vinningshafarnir í Iðnó í dag.
Vinningshafarnir í Iðnó í dag. mynd/Sigtryggur Ari Jóhannsson
Menningarverðlaun DV voru afhent í Iðnó í dag en veitt voru verðlaun í níu flokkum. Veitt voru verðlaun flokkunum bókmenntir, fræði, byggingarlist, danslist, hönnun, kvikmyndir, leiklist, myndlist og tónlist. Þá voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á listasviðinu á síðastliðnu ári. Einnig voru veitt verðlaunin í flokknum Val lesenda. Forseti Íslands afhenti árleg heiðursverðlaun sem Ingibjörg Björnsdóttir, dansari, hlaut. Þetta er í 33. skiptið sem menningarverðlaun DV eru afhent.

Hönnun:

Verðlaun: Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir

Þær Snæfríður Þorsteinsdóttir og Hildigunnur Gunnarsdóttir hafa átt gjöfult samstarf í meira en áratug. Þær hafa einkum átt í einkar vel heppnuðu samstarfi við bókaútgáfuna Crymogeu þar sem þær hafa hannað hverja bókina á fætur annarri. Sú þekktasta er þar vitanlega Flóra Íslands eftir Eggert Pétursson en á síðasta ári sáu þær meðal annars um hönnun á Íslenskum fuglum eftir Benedikt Gröndal.

Formaður nefndar: Tinni Sveinsson

Bókmenntir:

Verðlaun: Vigdís Grímsdóttir fyrir bók sína Trúir þú á töfra?

Vigdís Grímsdóttir hefur einstakt lag á að segja sögur sem taka sér bólstað í hjartanu. Þessi margslungna en jafnframt kristaltæra saga leiðir lesandann á vit margslunginna ævintýra. Verkið er í senn fagurt ljóð og grimmileg frásögn, beljandi stórfljót og hjalandi lækur sem skapa flóru hughrifa og fá lesandann til að horfast í augu við sjálfan sig og viðhorf sín til tilverunnar.

Formaður nefndar: Hrafn Jökulsson

Leiklist:

Verðlaun: Kristín Jóhannesdóttir

Kristín Jóhannesdóttir er tilnefnd fyrir uppfærslu sína: Svarti hundurinn prestsins í Þjóðleikhúsinu. Kristín hefur mörg undanfarin ár sýnt og sannað að hún er hugmyndaríkur og smekkvís leikstjóri. Sérstaða hennar meðal íslenskra leikstjóra felst þó ekki síst í þeirri sterku myndrænu sýn sem einkennir sviðsetningar hennar og lifir lengi með áhorfandanum eftir að sýningunni er lokið.

Formaður: Jón Viðar Jónsson gagnrýnandi

Fræði:

Verðlaun: Jónas Kristjánsson fyrir 1001 Þjóðleið

Hér er um að ræða afrakstur áratuga vinnu Jónasar og úr verður glæsilegt verk sem gera mun Íslendingum kleift að fara lítt troðnar slóðir um land sitt og kynnast því á nýjan hátt.

Formaður nefndar: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir ritstjóri

Myndlist:

Verðlaun: Endemis (ó)sýn

Sýningin „Endemis (ó)sýn" var sett upp í Gerðarsafni undir lok síðasta árs í tilefni af útkomu annars tölublaðs tímaritsins Endemis sem að standa ungar konur úr ýmsum greinum og ætlað er að vera vettvangur fyrir nýja myndist og, ekki síst, að „rýna í kynjaójafnvægi í lista- og menningarumfjöllun á Íslandi".

Formaður:Jón Proppé

Kvikmyndir:

Verðlaun: Caoz

Kvikmyndafyrirtækið Caoz fær menningarverðlaun DV fyrir frumkvöðlastarf. Caoz hefur byggt upp sérfræðigrunn hér á landi og víðar, hlúð að hugviti, ráðist í nýja tækni, skapað tækifæri til frekari teiknimyndaframleiðslu og vakið á henni athygli á Íslandi og utan landsteinanna.

Formaður: Vera Sölvadóttir

Tónlist:

Verðlaun: Of Monsters and Men

Áttu ótrúlega flott ár. Gáfu út plötuna My Head Is An Animal og gerðu t.d. flotta hluti í Ameríku. Komu laginu Little Talk á toppinn hjá útvarpsstöð í Fíladelfíu sem skapaði mikinn hita fyrir bandinu þar í borg. Framtíðin er björt.

Formaður: Ómar Eyþórsson

Danslist:

Verðlaun: Erna Ómarsdóttir

Erna Ómarsdóttir hlýtur tilnefningu sem sá danshöfundur sem borið hefur hróður íslenskrar danslistar sem víðast um álfur á undanförnum tveimur áratugum. Erna er, að mati dómnefndar, fremsti danshöfundur Íslands.

Formaður: Karen María Jónsdóttir



Byggingarlist:

Verðlaun: Tónlistarhúsið Harpa

Sem form í borgarmyndinni vekur Tónlistarhúsið Harpa aðdáun og hrifningu sumra, undran annarra. Tilkoma hennar setur mikið mark á miðbæ Reykjavíkur og hafnarsvæðið og hún kemur til með að skipa stóran sess í framtíðarskipulagi svæðisins.

Formaður nefndar: Helgi Steinar Helgason arkitekt

Val lesenda

Kormákur og Skjöldur

Guðmundur Jörundsson vinnur á vandaðan hátt úr klassískri herratísku og heldur hönnuninni tímalausri. Jafnframt gæðir hann þau ferskleika þannig að þau eiga fullt erindi við tísku dagsins í dag.

Heiðursverðlaun:

Ingibjörg Björnsdóttir

Ingibjörg Björnsdóttir hefur í meira en hálfa öld verið framfaraafl á sviði listdans, listdanssmíða, listdanskennslu, dansfræða og félagsstarfa á sviði listdans og enn þann dag í dag stígur hún skref sem opna heim danslistarinnar á einn eða annan hátt. Hún hefur lengur en nokkur annar unnið að margvíslegri eflingu listdans á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.