Körfubolti

Drekarnir flengdir | Stórleikur Loga dugði ekki til fyrir Solna

Hlynur og Jakob.
Hlynur og Jakob. mynd/valli
Sænsku meistararnir í Sundsvall Dragons fengu slæman skell er þeir mættu LF Basket öðru sinni í úrslitakeppninni. Lokatölur 85-52 fyrir LF Basket og staðan í einvíginu 1-1.

Hlynur Bæringsson var stigahæstur í liði Sundsvall með 13 stig og hann tók þess utan 11 fráköst. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 9 stig. Pavel Ermolinskij lék sinn fyrsta leik fyrir Sundsvall í ansi langan tíma. Hann skoraði 1 stig og tók 7 fráköst.

Logi Gunnarsson og félagar í Solna Vikings eru lentir 0-2 undir í einvíginu gegn Södertalje Kings eftir annað naumt tap, 82-89.

Logi var allt í öllu í liði Solna. Hann skoraði 23 stig, tók 4 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×