Körfubolti

Jakob fór fyrir liði Sundsvall í góðum sigri

Jakob og Hlynur.
Jakob og Hlynur. mynd/valli
Svíþjóðarmeistarar Sundsvall Dragons fóru vel af stað í úrslitakeppninni í kvöld er þeir unnu fyrsta leikinn gegn LF Basket, 88-80.

Jakob Örn Sigurðarson fór fyrir liði Drekanna og skoraði 24 stig. Hlynur Bæringsson skoraði 4 og tók 8 fráköst.

Helgi Már Magnússon og félagar í 08 Stockholm HR töpuðu fyrir Norrköping Dolphins, 75-72, í hörkuleik. Helgi Már skoraði 11 stig í leiknum.

Logi Gunnarsson skoraði svo 11 stig fyrir Solna Vikings sem tapaði gegn Södertalje, 86-82.

Það þarf að vinna þrjá leiki í fyrstu umferð úrslitakeppninnar til þess að komast áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×