Innlent

Kona á áttræðisaldri ók bíl á öfugan vegarhelming

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Atvikið átti sér stað á Hafnarfjarðavegi.
Atvikið átti sér stað á Hafnarfjarðavegi.
Kona á áttræðisaldri lenti í verulegum vandræðum í umferðinni í gær en hún ók bíl sínum á öfugum vegarhelmingi á Hafnarfjarðarvegi. Vegfarandi kom konunni til aðstoðar og hringdi í lögregluna. Laganna verðir fóru strax á vettvang og hjálpuðu konunni að snúa bílnum við. Til öryggis var henni síðan fylgt á fyrirhugaðan áfangastað og gekk það áfallalaust. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var konan allsgáð en hún hafði óvart tekið „ranga beygju" með fyrrgreindum afleiðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×