Menning

Fantasíur rjúka beint á toppinn

BBI skrifar
Fantasíur, samansafn Hildar Sverrisdóttur af kynferðislegum hugarórum kvenna, er mest selda kilja síðustu vikunnar í Eymundsson. Bókin kom út á fimmtudaginn síðasta og rýkur beint á toppinn. Hún er sömuleiðis þriðja mest selda bókin í öllum flokkum.

Rétt er að taka fram að tölurnar miða við tímabilið frá miðvikudeginum síðasta til dagsins í dag og því var kiljan ekki í sölu allt tímabilið.

Bryndís Loftsdóttir hjá Eymundsson segist viss um að meirihluti kaupendanna séu konur „Enda er bókin skrifuð af konu fyrir konur um fantasíur kvenna. En körlum er auðvitað frjálst að líta í hana ef þeir vilja," segir hún. Í útgáfupartíinu seldust 75 eintök af bókinni en sú tala hefur margfaldast síðan þá. Bryndís getur ekki gefið upp nákvæma sölutölu.

Bók Sigurgeirs Sigurjónssonar, Iceland Small World, trónir enn á toppnum og ekkert lát á vinsældum hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.