Menning

Sagafilm með í Emmy-tilnefningu

MYNDIR / SAGAFILM
Þýska heimildarmyndin Wettlauf Zum Südpol, sem heitir á ensku Race to the South Pole, er tilnefnd til alþjóðlegu Emmy-verðlaunanna sem besta heimildarmyndin. Myndin er framleidd af þýska framleiðslufyrirtækinu Loopfilm en íslenska framleiðslufyrirtækið Sagafilm aðstoðaði við framleiðslu á þessu metnaðarfulla verkefni.

Heimildarmyndin fjallar um örlagaríkt einvígi á milli Norðmannsins Roald Amundsen og Bretans Robert Falcon Scott, menn sem lögðu líf sitt að veði fyrir hundrað árum til að komast að enda jarðar – á sjálfan suðurpólinn. Roald og fimm manna hópur hans var fyrstur til að komast á áfangastað þann 14. desember árið 1911. Robert komst á pólinn aðeins 34 dögum seinna. Roald og hans hópur komst áfallalaust til baka af suðurpólnum á meðan Robert og hans menn létust allir á leiðinni heim.

Race to the South Pole keppir við heimildarmyndirnar Across Land, Across Sea frá Suður-Kóreu, Hiter's Escape frá Argentínu og Terry Pratchett: Choosing to Die frá Bretlandi á alþjóðlegu Emmy-verðlaunahátíðinni. Verðlaunin verða afhent þann 19. nóvember næstkomandi í New York-borg.

Meðfylgjandi eru myndir sem teknar voru við tökur á heimildarmyndinni.

Sagafilm á Facebook






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.