Menning

Síminn stoppaði ekki í fimm ár

MYNDIR / SAGAFILM & LANDSBJÖRG
Þáttaröðin Íslensku björgunarsveitirnar hefst á sunnudaginn næsta á RÚV. Þættirnir eru fjórir talsins, koma úr smiðju Sagafilm og hafa verið fimm ár í vinnslu.

Þáttaröðin fjallar um íslensku björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar og störf þeirra. Í gegnum þá er veitt innsýn inn í líf og störf björgunarsveitarfólks og áhorfendur leiddir í allan sannleikann um hvað gengur á í stórum og umfangsmiklum björgunaraðgerðum.

Sagafilm hefur fylgst með björgunarsveitunum í fimm ár og myndað valin útköll á því tímabili. Útköll á björgunarsveitir eru að meðaltali 2 til 3 daglega á landsvísu og oft er um að ræða aðgerðir þar sem um líf eða dauða er að tefla. Ótrúlega mikið og öflugt starf liggur að baki sterkri björgunarsveit en starfið er sjálfboðaliðastarf og eru hátt í 4000 manns á útkallsskrá á landsvísu. Um 18.000 einstaklingar eru meðlimir í samtökunum Slysavarnafélagið Landsbjörg sem gerir það eitt af stærstu sjálfboðaliðasamtökum á Íslandi.

Framleiðendur og leikstjóri þáttanna ákváðu í upphafi þessa metnaðarfulla verkefnis að fara á útkallsskrá íslensku björgunarsveitanna og því hefur síminn þeirra ekki stoppað síðustu fimm árin. Nú býr Sagafilm yfir 350 klukkustundum af myndefni frá á annað hundrað útköllum víðs vegar um landið á tímabilinu ágúst 2007 til ágúst 2012. Er óhætt að fullyrða að þetta sé eitt stærsta verkefni framleiðslufyrirtækisins til þessa.

Facebook-síða Sagafilm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.