Skoraði óheiðarlegt mark | Myndband Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. nóvember 2012 20:29
Afar sérstakt atvik kom upp í leik Nordsjælland og Shakhtar Donetsk í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Leiknum lauk með 5-2 sigri gestanna frá Úkraínu en leiksins verður fyrst og fremst minnst fyrir fyrsta mark Shakhtar í kvöld. Heimamenn í Nordsjælland komust yfir á 24. mínútu með marki Morten Nordstrand en tveimur mínútum síðar jafnaði Shakhtar Donetsk með umdeildu marki, eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi. Nordsjælland hafði verið með boltann þegar leikurinn var stöðvaður vegna meiðsla. Þegar hann fór aftur af stað sparkaði Willian, leikmaður Shakhtar, boltanum aftur til Jesper Hansen, markvarðar Nordsjælland, til að koma honum aftur til Dananna. Þá tók Luiz Adriano, sókanarmaður Shakthar, sig til og hljóp á eftir sendingunni - náði boltanum og skoraði fram hjá Hansen. Dómari leiksins gat ekki annað en að dæma markið gott og gilt, þrátt fyrir kröftug mótmæli heimamanna. Leikurinn hélt áfram eftir þetta en gestirnir frá Úkraínu sáu ekki ástæðu til þess að „gefa" Nordsjælland mark vegna þessa. Heimamenn komust þó yfir á ný strax á 30. mínútu þegar að Kapser Lorentzen skoraði með föstu skoti, í slána og inn, eftir laglega sókn heimamanna. Það dugði þó ekki til á endanum.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Handbolti Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Enski boltinn Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Handbolti Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg Handbolti Hinn reynslumikli Stafford eftirsóttur Sport „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ Handbolti Bologna kom til baka gegn AC Milan Fótbolti „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Handbolti „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Bologna kom til baka gegn AC Milan Echeverri má loks spila fyrir Man City Valdi Laudrup besta fótboltamann sögunnar Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Sektin hans Messi er leyndarmál Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Sjá meira