Körfubolti

Sundsvall Dragons í beinni á netinu í kvöld

Jakob og Hlynur eru í beinni á netinu á eftir.
Jakob og Hlynur eru í beinni á netinu á eftir.
Úrslitakeppnin í sænska körfuboltanum hefst í kvöld með þremur leikjum. Íslendingaliðið Sundsvall Dragons á titil að verja og það mætir Lf Basket í fyrstu umferð.

Helgi Már Magnússon og félagar í 08 Stockholm HR mæta sterku liði Norrköping Dolphins en Logi Gunnarsson og hans lið, Solna Vikings, spilar gegn Södertalje.

Það þarf að vinna þrjá leiki í fyrstu umferð úrslitakeppninnar til þess að komast í næstu umferð.

Leikur Sundsvall, sem Hlynur Bæringsson, Jakob Örn Sigurðarson og Pavel Ermolinskij leika með, er í beinni á netinu og má nálagast útsendinguna hér.

Leikirnir hefjast klukkan 18.04.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×