Menning

Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins

myndir/sigurjón ragnar
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru afhent við hátíðlega athöfn í gær.

Skoða myndirnar hér.



Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin. Þetta er í sjöunda sinn sem Fréttablaðið veitir Samfélagsverðlaun en þau eru veitt í fjórum flokkum auk heiðursverðlauna.

Að þessu sinni hlaut áfangaheimilið Dyngjan Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins. Dyngjan hefur starfað síðan 1988. Hlutverk Dyngjunnar er að veita konum sem koma úr áfengis- og vímuefnameðferð samastað meðan þær koma undir sig fótum í nýju lífi.

Dyngjan hefur reynst mörgum konum mikilvægur áfangastaður en á dvalartíma sínum fá þær svigrúm til að breyta og byggja upp allsgáðan ábyrgan lífsstíl.

Ari Edwald, forstjóri 365, afhenti síðan verðlaunafé að upphæð ein milljón króna. Aðrir sem voru útnefndir til Samfélagsverðlauna voru Frú Ragnheiður, heilsugæsluþjónusta fyrir jaðarhópa, og Vinafjölskyldur sem er verkefni sem stuðlar að því að erlendar fjölskyldur séu virkar í skólastarfi.

Hvunndagshetja ársins 2012 er Pauline McCarthy, sem er jafnan tilbúin að leggja góðum málefnum lið. Auk þess að vinna sjálfboðastörf bæði fyrir Rauða krossinn og Mæðrastyrksnefnd hefur hún opnað heimili sitt þeim sem eru einir á jólum. Aðrir tilnefndir í þessum flokki voru Árni Stefán Árnason, lögfræðingur með dýrarétt að sérsviði, og Gróa Gunnarsdóttir, leikskólakennari á leikstofu Barnaspítala Hringsins.

Verðlaun í þessum flokki fékk Bandalag íslenskra skáta, sem hefur að leiðarljósi að þroska börn og ungt fólk til að verða sjálfstæðir, virkir, hjálpsamir og ábyrgir samfélagsþegnar. Skátahreyfingin gegnir mikilvægu hlutverki sem valkostur í frístundastarfi barna og ungmenna.

myndir/sigurjón ragnar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.