Körfubolti

Helgi Már stigahæstur en 08 Stockholm tapaði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helgi Már Magnússon.
Helgi Már Magnússon. Mynd/Daníel
Helgi Már Magnússon og félagar í 08 Stockholm HR töpuðu með tíu stiga mun fyrir Norrköping Dolphins í kvöld, 67-77, og eru því 1-2 undir í einvígi liðanna í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar. Norrköping Dolphins vann einnig fyrsta leikinn en 08 Stockholm HR svaraði með sigri á heimavelli.

Helgi Már átti flottan leik og skoraði 17 stig í leiknum en Helgi Már hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Helgi Már var einnig með 4 fráköst og 1 stoðsendingu.

Helgi Már fékk 16 framlagsstig í leiknum og kom best út af öllum leikmönnum liðsins en hann var einnig stigahæsti leikmaður 08 Stockholm HR í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×