Fótbolti

Jovetic vildi ekki fara til Man. City

Jovetic.
Jovetic.
Svartfellingurinn Stevan Jovetic hefur staðfest að hann hafnaði tækifæri til þess að ganga í raðir Man. City í sumar.

Juventus vildi líka fá leikmanninn en hann ákvað að halda tryggð við Fiorentina.

"Ég stoppaði samningaviðræður Man. City og Fiorentina. Þá var ég búinn að ákveða að vera áfram í Flórens. Ég sé ekkert eftir þeirri ákvörðun. Ég mun ekki fara fyrr en þetta lið hefur náð sínum markmiðum," sagði JOvetic.

Hann vildi heldur ekki fara til Juve enda mikill rígur á milli félaganna eftir að Roberto Baggio fór til Juve árið 1990. Það situr enn í stuðningsmönnum Fiorentina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×