Innlent

Farþegum fjölgar hjá Icelandair

Icelandair flutti 119 þúsund farþega í nýliðnum marsmánuði, sem er tuttugu og þriggja prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra. Sætafamboð var 15 prósentum meira nú en í fyra þannig að sætanýtingin jókst talsvert og nam rúmum 80 prósentum, sem þykir mjög gott á þessum árstíma.

Aukning varð á öllum mörkuðum félasins. Þessi fjölgun er í takt við könnun, sem ferðavefurinn fodors.com hefur gert meðal ferðalanga um Evrópu, þar sem Ísland skorar mjög hátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×