Tíska og hönnun

Leynitrix förðunarmeistarans

Steinunn Edda útskrifaðist með diploma í förðun frá Fashion Academy Reykjavík.
Steinunn Edda útskrifaðist með diploma í förðun frá Fashion Academy Reykjavík. myndir/einkasafn Steinunnar
Steinunn Edda Steingrímsdóttir förðunarfræðingur er verslunarstjóri í Make Up Store Smáralind. Hún fræðir lesendur Lífsins hverjar aðal áherslurnar eru þegar kemur að haust- og vetrarförðun.

„Ég hef fengið að kynnast Make Up Store vörunum vel og er mjög hrifin af þeim enda nota ég þær rosalega mikið. Mér finnst gaman að prófa mig áfram með liti en ég legg mesta áherslu á að láta húðina líta vel út og ná fallegum ljóma í húðina," segir Steinunn og heldur áfram:

Glimmer og steinar á augun

"Ég er mjög hrifin af dökkum vörum og „smokey" augum í haust og vetur og finnst gaman að prófa mig áfram í því með því að nota glimmer, steina, allskonar skemmtilega liti og hugsa aðeins út fyrir kassann," segir Steinunn.

Hér má skoða myndir af Steinunni þar sem hún sýnir það nýjasta í förðun.

Vinsælt að blanda saman litum

„Númer eitt, tvö og þrjú er að blanda saman litum þegar kemur að því að farða augun. Fallegast finnst mér að hafa augnförðunina milda og blandaða. Ég er sjúk í kinnaliti og nota þá óspart. Stundum fer ég alveg yfir strikið en mér finnst það bara skemmtilegt."

Ljós blýantur er gott leynitrix

"Leynitrixið mitt til að ná fram sterkum vörum og skörpum útlínum er að nota ljósan blýant í kringum varirnar áður en ég set á mig varalit."

Steinunn bloggar á vefnum Margret.is – sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×