Menning

Salon Islandus bregður á leik

Salon Islandus spilar í sínu fínasta pússi í Salnum annað kvöld ásamt Þóru Einarsdóttur söngkonu.
Salon Islandus spilar í sínu fínasta pússi í Salnum annað kvöld ásamt Þóru Einarsdóttur söngkonu.
„Við höfum staðið fyrir nýárstónleikum síðan árið 2004, leikum Vínartónlist, valsa og polka, sprellum og höfum það gaman. Í ár verður Þóra Einarsdóttir söngkona með okkur og tekur nokkur lög,“ segir Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og meðlimur í kammerhópnum Salon Islandus sem heldur tónleika í Salnum í Kópavogi annað kvöld klukkan átta.

Á laugardag leggja þau svo land undir fót og halda Vínartónleika í Miðgarði í Skagafirði. „Þá verður karlakórinn Heimir með okkur og söngvararnir Óskar Pétursson og Helga Rós Indriðadóttir. Að loknum tónleikunum leikur sveitin fyrir dansi,“ segir Anna sem segir það óvenjulegt en skemmtilegt fyrir klassískt menntaða hljóðfæraleikara að leika fyrir dansi.

Auk Önnu Guðnýjar skipa Salon Islandus þau Sigurður Ingvi Snorrason, klarinettuleikari sem er hljómsveitarstjóri, Sigrún Eðvaldsdóttir og Pálína Árnadóttir fiðluleikarar, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari, Hávarður Tryggvason sem leikur á kontrabassa, Martial Nardeau flautuleikari og Pétur Grétarsson slagverksleikari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.