Einar um Sijan: Þetta er bara brandari Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. janúar 2012 07:00 Sijan fagnar hér í leik með þýska liðinu Flensburg. Nordic Photos / Getty Images
Serbneski handboltamarkvörðurinn Dane Sijan hélt því fram í viðtali við TV2 í Danmörku um helgina að Ísland hefði reynt að kaupa sig fyrir 2-3 árum. Sijan, sem leikur með Viborg í Danmörku og var áður hjá Flensburg í Þýskalandi, sagðist hafa fengið freistandi tilboð frá Íslandi en hefði hafnað því þar sem hann nennti ekki að bíða í þrjú ár eftir því að spila næst landsleik. Það er sá tími sem þarf að líða þegar menn skipta um ríkisfang. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, segist ekkert skilja í þessum yfirlýsingum Serbans. „Þetta er bara brandari. HSÍ hefur aldrei talað við þennan mann og myndi ekki fara í slíkar aðgerðir. Hann hefði þurft að flytja hingað og búa í þrjú ár áður en hann gæti spilað með landsliðinu. Þetta er fáránlegt og ég fór að hlæja er ég sá þetta," sagði Einar ákveðinn. „Við höfum ekki einu sinni getu til þess að bjóða svona lagað og þess utan vinnum við ekki á þennan hátt." Arnar Freyr Theodórsson er umboðsmaður Sijan og hann segir að rangt hafi verið haft eftir skjólstæðingi sínum á TV2. „Það var maður ótengdur HSÍ sem viðraði þessa hugmynd Dane árið 2005 eða 2006. Sá maður ræddi einnig óformlega við þáverandi umboðsmann Dane. Þar við sat. Aldrei var rætt um neina peningaupphæðir eða annað. Þetta mál fór aldrei á alvarlegt stig," sagði Arnar.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Átta hlaupa inn í nóttina Sport Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Uppgjörið: HK - Fram 2-1 | Flautumark heldur vonum HK á lífi Íslenski boltinn Uppgjörið: Fylkir - KR 0-1 | KR fagnaði sigri gegn tíu Fylkismönnum Íslenski boltinn Uppgjörið: Haukar - Cocks 35-26 | Haukar fara með gott veganesti til Finnlands Handbolti Skiptar skoðanir á nýju merki Njarðvíkur Körfubolti Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni Fótbolti Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Enski boltinn Fleiri fréttir Stærsta lið Noregs í þrot Uppgjörið: Haukar - Cocks 35-26 | Haukar fara með gott veganesti til Finnlands 23 íslensk mörk þegar Magdeburg vann Leipzig Strákarnir hans Gumma Gumm með fimmta sigurinn í röð Dana Björg markahæst í sigurleik Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Elvar skoraði sex þegar Melsungen fór á toppinn Grótta náði í stig gegn meisturum FH Ýmir dýrmætur í fyrsta sigrinum Fjölnir nálægt því sem Porto tókst ekki en Valskonur á siglingu Guðjón og Elliði fögnuðu áfram eftir Íslandsför Sjáðu ótrúlegt mark Sigvalda í Meistaradeildinni KA og ÍR fögnuðu eftir spennu Orri magnaður í frábærum sigri Kristján rifbeinsbrotnaði: „Fannst þetta klárt rautt spjald“ Aron aftur til Veszprém eftir stormasaman viðskilnað Íslensk upprisa dugði ekki til og Bjarki fagnaði gegn löndum sínum Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 38-27 | Mosfellingar á toppinn með stórsigri Sandra í landsliðinu þremur mánuðum eftir barnsburð Aron Dagur í Kópavoginn Allt jafnt á Ásvöllum Selfoss upp fyrir Stjörnuna Slæmt gengi Magdeburg í Evrópu heldur áfram Óaðfinnanleg Elín Klara skaut Haukum upp í þriðja sætið Uppgjörið: Fram - ÍBV 29-20 | Öruggur heimasigur Landsliðshetjan í áfalli: Ég skelf öll „Stór partur af mér sem persónu“ „Við vorum bara niðurlægðir“ „Æðislegt að sjá svona marga Íslendinga sem halda með okkur“ Þorsteinn Leó: Ég sá að stúkan var hálf blá Sjá meira