Menning

Skilafrestur fer eftir svefni

Hugleikur Dagsson og Ólafía Erla Steinsdóttir.
Hugleikur Dagsson og Ólafía Erla Steinsdóttir. Mynd/Stefán
„Það er slatti af myndasögum komnar inn nú þegar en skilafrestur rennur út þegar við vöknum á mánudagsmorguninn næstkomandi. Nánari tímasetning fer eftir hvað við ákveðum að sofa lengi," segir skopmyndateiknarinn Hugleikur Dagsson hjá bókaútgáfunni Ókeibæ, sem stendur fyrir myndasögukeppni.

Allir geta sent inn myndasögur, sem mega vera að hámarki fjórar blaðsíður, og þær bestu birtast í hinu ókeypis Ókeipiss blaði. Blaðið er gefið út af Ókeibæ í samvinnu við Nexus í tengslum við alþjóðlega ókeypis myndasögudaginn þann 5. maí næstkomandi.

„Nexus heldur alltaf upp á daginn með því að gefa bunka af myndasögum og það verður hægt að nálgast það þar. Það myndast alltaf rosa löng röð fyrir utan Nexus á þessum degi og það er alltaf gott veður. Ég er samt viss um að nördarnir myndu bíða í röð þrátt fyrir rigningu, þeir eru svo þrautsegir. Það er ekkert sorglegra en 100 blautir nördar í rigningu að bíða eftir myndasögum," segir Hugleikur og hlær.

Enn er tími fyrir þá sem finna hjá sér köllun til að senda inn efni. „Oft kemur besta efnið á síðustu mínútunum," segir Hugleikur. -trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.