Erlent

Leit hætt í flaki Costa Concordia

Leit er hætt að þeim 15 manns sem enn er saknað úr flaki skemmtiferðaskipsins Costa Concordia.

Talsmaður ítölsku kafaranna sem staðið hafa að leitinni segir að aðstæður um borð í skipinu séu orðnar of hættulegar og erfiðar fyrir kafarana og því hafi leitin verið blásin af.

Fram að þessu hefur köfurunum tekist að finna lík 17 manns af þeim 32 sem fórust þegar Costa Concordia sökk við eyjuna Gigli á Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×