Erlent

Metfjöldi mæðra yfir fertugu

Þórunn Elísabet Bogadóttir skrifar
Sérfræðingur telur kreppuna hafa haft áhrif á aldur nýbakaðra foreldra. nordicphotos/getty
Sérfræðingur telur kreppuna hafa haft áhrif á aldur nýbakaðra foreldra. nordicphotos/getty
Aldrei hafa fleiri konur yfir fertugu fætt börn í Danmörku en í fyrra. Rúmlega 1.900 börn fæddust mæðrum á aldrinum 40 til 45 ára, og 100 börn fæddust mæðrum yfir 45 ára.

„Samfélagið hefur breyst mikið. Við erum að verða eldri og eldri og heilbrigðari og heilbrigðari. Við sjáum okkur sem tíu árum yngri, félagslegur aldur hefur breyst en líffræðin ekki," segir Karin Erb, yfirlíffræðingur á háskólasjúkrahúsinu í Óðinsvéum við Politiken.

Erb bendir á að líkurnar á getnaði á þessum aldri séu undir tíu prósentum. „Mörg þessara barna eru líklega komin undir með tæknifrjóvgun." Konur geta farið í tæknifrjóvganir til 41 árs aldurs hjá opinberum aðilum en hjá einkareknum heilbrigðisstofnunum til 46 ára aldurs, að sögn Politiken.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×