Innlent

Vilja að fjöldamorðinginn verði dæmdur til dauða

Þess verður krafist að James Holmes, sem skaut tólf til bana og særði fimmtíu og átta í skotárás í kvikmyndahúsi í Colorado-fylki í Bandaríkjunum á síðasta ári, verði dæmdur til dauða.

Þetta kom fram í máli saksóknara í gær. Í síðustu viku sögðu verjendur Holmes að hann væri tilbúinn að lýsa sig sekann, gegn því að sleppa við dauðarefsinguna.

Saksóknarinn í málinu sagði hinsvegar að eftir samtöl við aðstandendur þeirra sem létust í árásinni, væri það ákvörðun embættisins að krefjast dauðadóms.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×