"Mér finnst ég ótrúlega heppin að hafa sloppið" Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. febrúar 2013 15:08 Freyja Haraldsdóttir Skjáskot
Fyrir hver fimm börn sem fæðast hér á landi árlega fer fram ein fóstureyðing. Þetta er meðal þess sem fram kom í sjónvarpsþættinum Málinu á Skjá einum sem sýndur var á mánudagskvöldið. Komið var víða við í þættinum og rætt við fólk úr læknastétt, forsvarsfólk trúfélaga, þingmenn, sérfræðinga og fólk sem hefur sögu að segja. Meðal viðmælenda í þættinum var Freyja Haraldsdóttir sem spurð er út í sína skoðun á fósturskimunum, hnakkaþykktarmælingum og fóstureyðingum. „Það er eðlilegasta mál í heimi að það sé frelsi kvenna að fara í fóstureyðingu. Það er hluti af því að hafa stjórn á eigin líkama," segir Freyja sem þó telur mikilvægt að heildarmyndin sé skoðuð í hverju tilfelli. Velta þurfi fyrir sér hvers vegna verið sé að skima fóstur. „Er markmiðið að hreinsa til í margbreytileika mannlífsins og taka í burtu ákveðna hópa af því okkur finnst þeir óþægilegir eða þeir kosta samfélagið mikinn pening? Er líf fatlaðra barna til dæmis svo hræðilegt að það sé betra að þau fæðist ekki heldur en að vera til? Er það pælingin?" spyr Freyja. Hún veltir fyrir sér hvar þetta muni enda. „Hvað ef við finnum samkynhneigða genið? Ætlum við að skima eftir því?" segir Freyja og minnir á að konur njóti ekki alltaf sömu réttinda og karlar. „Eigum við að fara að eyða fóstrum á grundvelli kyns? Við þurfum að spyrja okkur allra þessara spurninga ef við ætlum að bjóða upp á fósturskimanir."Sölvi TryggvasonSkjáskotSölvi Tryggvason, umsjónarmaður þáttaraðarinnar, spurði Freyju út í sína persónulegu skoðun á fósturskimunum og hnakkaþykktarmælingum. Í slíkri mælingu er hægt að fá metin líkindi á því að fóstrið sé með litningagalla. Freyja segist líta svo á að hún sé hólpinn. Hún sé ekki mjög hrifin af fósturskimunum sem fötluð kona. „Ég er bara heppin að hafa fæðst þegar fósturskimanir voru ekki eins miklar. Ég veit ekki hvað foreldrar mínir hefðu tekið ákvörðun um að gera." „Ef þau hefðu vitað að ég væri mikið hreyfihömluð, hvort þau hefðu eytt mér eða ekki? Við vitum það ekki. Þá væri ég kannski ekki til. Það er svo ótrúlega skemmtilegt að lifa þessu lífi og mikilvægt að fá að gera það," segir Freyja og bætir við: „Það væri mjög skrýtið ef mér fyndist þetta í lagi því þá væri ég að segja að það væri í lagi að eyða fólki eins og mér."Guðmundur Ármann PéturssonSkjáskotÍ þættinum á mánudagskvöldið var einnig rætt við Guðmund Ármann Pétursson sem á barn með Downs-heilkenni. Aðspurður um það hvernig það sé að vera foreldri barns með Downs-heilkenni svarar Guðmundur: „Það eru forréttindi. Það eru algjör forréttindi. Þó að einstaklingur hafi Downs-heilkenni þá er hann ekki veikur. Það er ekkert að. Hann er eins og hann er. En hann verður veikur. Hann fær kvef og hann fær þetta og hann fær hitt. En hann er ekki veikur," segir Guðmundur. Hann er ekki hrifinn af fósturskimunum. „Í meðgöngu er einn hópur í okkar fjölbreytta þjóðfélagi tekinn út fyrir sviga," segir Guðmundur og á við fóstur sem greind hafa verið með downs-heilkenni. Hann samsinnir vangaveltu Sölva hvort börnum með downs-heilkenni hafi fækkað á síðustu árum. „Ég man að vitnað var í yfirlækni uppi á fæðingardeild að það væri teljandi á fingrum annarrar handar þeir foreldrar sem kysu að eiga barn þegar vitneskja væri komin um að barnið hefði Downs-heilkenni." Málið er á dagskrá Skjásins á mánudagskvöldum klukkan 22.
Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Kveiktu á tónlist til að yfirgnæfa hávaða í mótmælendum Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent Fleiri fréttir Hryðjuverkaógn, setustofa á Esjunni og milljarðar í húfi Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Sauð á starfsmanni sem löðrungaði íbúa á hjúkrunarheimili Fleiri en ein hópnauðgun til rannsóknar Kynnir áform um að leggja niður stjórn Sjúkratrygginga Pétur Jökull fékk átta ára dóm í Landsrétti Jómfrúarræða um Súðavíkurhlíð og skömmu síðar lenti sonur hans þar í slysi Þakgarðar og bílalyfta í stað bensínstöðvar Loftleiðir stofnuðu Cargolux til að nýta verðlitlar flugvélar Birtir niðrandi ummæli sem lýsi hatri í garð trans fólks Veiðigjöldin verði keyrð í gegn Óvíst hvort að tvöföldun rýma muni nægja Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku Kveiktu á tónlist til að yfirgnæfa hávaða í mótmælendum Markaðir kættust eftir að Trump frestaði ofurtollum Bein útsending: Geðheilbrigði fyrir öll Pallborðið: Er „woke-ismi“ pólitískur rétttrúnaður? Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Alvarleg frávik í meðferð og umgengni við hryssur í blóðtöku Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira