Erlent

Yngsta fórnarlamb Savile var átta ára gömul stúlka

Yngsta fórnarlamb bresku sjónvarpsstjörnunnar og barnaníðingsins Jimmy Savile var aðeins átta ára gömul stúlka.

Alls eru kynferðisafbrot Savile 213 talsins en í 73% tilvika var um unglinga og börn undir 18 ára aldri að ræða. Í 34 tilvikum var um nauðgun að ræða.

Þetta eru niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar bresku lögreglunnar á glæpum Savile en skýrsla um þau var birt í morgun. Í henni kemur fram að kynferðisafbrot Savile hafi staðið frá árinu 1955 og fram til ársins 2009.

Flest þeirra voru framin þegar Savile starfaði fyrir BBC á árunum 1965 til 2006. Savile lést árið 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×