Erlent

Höfuðpaurinn í nauðgunarmálinu í Nýju Delhí hengdi sig

Ram Singh höfuðpaurinn í hinni hrottalegu nauðgun í Nýju Delhí framdi sjálfsmorð í fangaklefa sínum um helgina.

Singh, sem er 35 ára gamall, var í strangri öryggisgæslu í fangelsinu en honum tókst samt að hengja sig. Fimm félagar Singh bíða dóms í málinu en þeir eiga allir ævilangt fangelsi yfir höfði sér og jafnvel dauðadóma því fórnarlambið, 23 ára gömul háskólastúdína, lést af sárum sínum að lokinni nauðguninni, í desember s.l.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×