Enski boltinn

Sir Alex kveður United

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Manchester United hefur staðfest að knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson muni láta af störfum í lok leiktíðar eftir 26 ára starf hjá félaginu.

Skotinn hefur skilað 38 titlum í hús en liðið hefur verið í sérflokki í ensku úrvalsdeildinni undanfarna tvo áratugi. Englandsmeistaratitlarnir urðu þrettán í vertíð Skotans auk þess sem liðið varð í tvígang Evrópumeistari.

„Ég hef velt ákvörðun minni fyrir mér vandlega. Núna er rétti tíminn," segir Skotinn sem er 71. árs sem tók við liði United árið 1986 af Ron Atkinson.

Ferguson, sem verður sendiherra félagsins, hrósaði fólkinu sem hann telur hafa hjálpað sér að gera félagið að einu því stærsta í heimi.

„Ég verð að hrósa fjölskyldu minni fyrir ást þeirra og stuðning sem hefur skipt sköpum," segir Ferguson. Fyrst á blað var eiginkona hans Cathy.

Sir Alex fagnar þrettánda Englandsmeistaratitlinum ásamt liðsmönnum United á dögunum.Nordicphotos/Getty
„Hún hefur verið í lykilhlutverki í gegnum ferilinn, verið stoð mín og stytta og verið afar hugrökk. Ég á engin orð til að lýsa á fullnægjandi hátt hversu mikilvæg hún hefur verið mér," segir Ferguson.

Þá þakkaði Ferguson leikmönnum og starfsfólki, bæði núverandi og fyrrverandi, fyrir fagmennsku í starfi. Án þeirra stæði félagið ekki jafnvel og það gerir í dag.

„Á fyrstu árum mínum naut ég fulls trausts stjórnarinnar og Sir Bobby Charlton til þess að byggja upp félag en ekki bara lið," segir Ferguson.

Það tók hann fjögur ár að skila fyrsta titlinum í hús. Þá varð United bikarmeistari árið 1990 en titillinn gaf Skotanum andrými til að gera liðið að Englandsmeisturum.

Sportið á Vísi er komið á Facebook. Fylgstu með.

Ferguson og Ole Gunnar Solskjær minnast augnabliksins magnað á Nou Camp árið 1999.Nordicphotos/Getty
Sigur hafðist í Evrópukeppni bikarhafa vorið 1991 og tveimur árum síðar varð liðið loks Englandsmeistari. Í hönd fór gósentíð félagsins þar sem þrettán Englandsmeistaratitlar, fimm bikarmeistaratitlar, fjórir deildabikartitlar auk tveggja Evrópumeistaratitlar komu í hús.

Ferguson er sigursælasti stjóri í sögu enskrar knattspyrnu. Besta tímabil hans hjá United var 1998-1999 þegar United vann þrennuna.

Veðbankar á Englandi telja David Moyes, landa Ferguson sem stýrir Everton, líklegastan til að taka við starfinu. Samningur Moyes við Everton rennur út í lok leiktíðar og viðræðum um nýjan samning hefur verið frestað.

Ferguson og Robin van Persie fagnar marki.Nordicphotos/Getty
Síðasti leikur Ferguson sem stjóri Manchester United verður í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar gegn West Brom þann 19. maí.

Ferguson verður ekki aðeins sendiherra félagsins heldur mun hann einnig taka sæti í stjórn félagsins.

Titlarnir sem Ferguson hefur skilað í hús á árunum 26

Englandsmeistarar

1993, 1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2003, 2007, 2008, 2009, 2011, 2013

Enski bikarinn

1990, 1994, 1996, 1999, 2004; League Cup: 1992, 2006, 2009, 2010

Deildabikarinn

1992, 2006, 2009, 2010

Meistaradeild Evrópu

1999, 2008

Heimmeistari félagsliða

2008

Ofurbikar UEFA

1992

Evrópukeppni bikarhafa

1991

Álfukeppni félagsliða

1999

Góðgerðarskjöldur/Samfélagsskjöldur

1990 (titlinum deilt), 1993, 1994, 1996, 1997, 2003, 2007, 2008, 2010, 2011


Tengdar fréttir

Telegraph: Sir Alex Ferguson að hugsa um að hætta í lok vikunnar

Enska dagblaðið Telegraph slær því upp í kvöld að Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, sé að íhuga það alvarlega að hætta sem stjóri félagsins fyrir lok vikunnar. Blaðið fékk engin viðbrögð frá Manchester United í kvöld þegar blaðamaður Telegraph bar þessar sögusagnir undir menn á Old Trafford.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×