Sport

Annað Íslandsmet hjá Matthildi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/ÍF
Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir náði góðum árangri í 100 m hlaupi á HM fatlaðra sem nú stendur yfir í Lyon í Frakklandi.

Hún bætti Íslandsmet sitt í greininni er hún kom í mark á 15,70 sekúndum í undanúrslitum nú í morgun en hún hafnaði í fimmtánda sæti í fötlunarflokki T37. Gamla Íslandsmetið var 15,89 sekúndur.

Matthildur bætti Íslandsmet sitt í 200 m hlaupi á sama móti í gær er hún hljóp á 31,63 sekúndum og bætti metið um rúma hálfa sekúndu.

Besta tíma 100 m hlaupsins í morgun náði Mandy Francois-Elie frá Frakklandi en hún hljóp á 13,70, nýju mótsmeti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×