Sveitin opnaði klámssíðu á netinu fyrr á þessu ári og hreykir sér af því að vera fyrsta hljómsveitin til þess að framkvæma slíkt uppátæki.
Nýverið tók svo bassaleikona sveitarinnar upp á því að fróa sér á túninu fyrir framan Westboro Babtist Church söfnuðinn sem frægur er fyrir hatur sitt á samkynhneigðum, tók allt upp á myndband og hlóð því svo á vefinn.
„Phelps fjölskyldan og babtista kirkjan þeirra í Westboro er fáránleg og gerir ekkert nema að breiða út hatur og skapa illindi,“ segir Laura Lush í fréttatilkynningu. „Sem tvíkynhneigð kona og bassaleikari í fáránlegri pönksveit hef ég ákveðið að breiða út klof mitt og skapa umtal.“
Myndbandið var gert fáanlegt á heimasíðu sveitarinnar og samkvæmt talsmönnum síðunnar hefur einhver frá kirkjunni verið duglegur við að skoða innihald hennar.
„Einhver á IP tölunni ykkar var inn á síðunni okkar í yfir 40 mínútur, sem er margfalt lengri tími heldur en myndbandið sem var tekið á túninu ykkar.“ Sagði í orðsendingu frá Get Shot! í gær.
Enn sem komið er hafa engin viðbrögð fengist frá Westboro babtista söfnuðinum. En hljómsveitin Get Shot! segist ætla að snúa aftur á túnið hjá þeim til að taka upp meira klám á næstu mánuðum.
Hér fyrir neðan má heyra brot af tónlist sveitarinnar ásamt smekklegum ljósmyndum úr safni þeirra.