Körfubolti

Hlynur og Jakob stigahæstir í sigri Drekanna

Hlynur og Jakob voru í stuði í kvöld.
Hlynur og Jakob voru í stuði í kvöld. mynd/valli
Íslendingarnir fóru einu sinni sem oftar fyrir liði Sundsvall Dragons í sænska körfuboltanum í kvöld. Þá unnu Drekarnir flottan heimasigur, 78-76, á Uppsala Basket.

Hlynur Bæringsson var stigahæstur í liði Drekanna með 19 stig. Hann tók einnig 9 fráköst og gaf fjórar stoðsendingar.

Jakob Örn Sigurðarson var einnig í stuði en hann skoraði 18 stig og gaf 7 stoðsendingar.

Ægir Örn Steinarsson skoraði 5 stig, tók 6 fráköst og gaf 7 stoðsendingar.

Sundsvall er í fjórða sæti sænsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×