Körfubolti

Hörður Axel spilaði í tapleik

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Hörður Axel Vilhjálmsson
Hörður Axel Vilhjálmsson Mynd/Daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson átti rólegan dag í 87-58 tapi Valladolid gegn Laboral Kutxa í ACB deildinni í körfubolta á Spáni í dag.

Hörður skoraði 4 stig ásamt því að taka 2 fráköst og gefa eina stoðsendingu í leiknum í dag. Þetta var fjórði tapleikur Valladolid á tímabilinu og eru Valladolid í 17. sæti deildarinnar eftir leiki dagsins.

Framundan eru mikilvægir leikir gegn Bàsquet Manresa, Murcia og Bilbao sem eru í næstu sætum við Valladolid í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×