Tónlist

Airwaves verður áfram á Kex

Tónlistarkonan kemur fram "off venue“ á Kex Hostel.
Tónlistarkonan kemur fram "off venue“ á Kex Hostel.
Það verður mikið um að vera á Kex Hostel á meðan á Iceland Airwaves-hátíðinni stendur 30. október til 3. nóvember.

Helstu flytjendurnir sem koma þar fram „off venue“ eru breska hljómsveitin Caveman, Emilíana Torrini, John Grant, múm, Nite Jewel frá Kaliforníu og Ásgeir Trausti.

Dagskráin, sem er unnin í samstarfi við Iceland Naturally, hefst með Stórsveit Samúels Samúelssonar sem kemur fram á miðvikudeginum klukkan 13. Lokatónleikarnir verða svo með tvíeykinu Gluteus Maximus á sunnudagskvöld. Ókeypis er inn á alla viðburði.

Útvarpsstöðin KEXP frá Seattle mun senda út frá Kex Hostel í þriðja sinn í ár en margir muna eftir tónleikum Of Monsters and Men á stöðinni sem vöktu mikla athygli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.