Innlent

Ensími með sárabótatónleika vegna Keflavik Music Festival

Kristján Hjálmarsson skrifar
Ensími ætlar að halda sárabótatónleika vegna Keflavík Music Festival.
Ensími ætlar að halda sárabótatónleika vegna Keflavík Music Festival. Fréttablaðið/Arnþór

Hljómsveitin Ensími ætlar, ásamt fleiri tónlistarmönnum, að halda ókeypis tónleika í tilefni þess að sveitin þurfti að afboða komu sína á Keflavik Music Festival. Tónleikarnir fara fram í Hljóðfærahúsi Reykjavíkur föstudaginn eftir viku.

Eins og fram kom á Vísi í morgun hætti Ensími og Sign við að koma fram á Keflavík Music Festival vegna. Í tilkynningu frá Ensíma segir: "Ástæðan fyrir því að Ensími afboðaði framkomu sína á Keflavik Music Festival eru vanefndir samninga, skipulagsleysi og almennt samskiptaleysi við skipuleggjendur sem svöruðu hvorki símtölum né skilaboðum tónlistarmanna sem vildu fara yfir stöðu mála áður en auglýst dagskrá myndi hefjast. Tónlistarmenn fengu boð um að skipuleggjendur væru á leiðinni í eigin persónu til að ræða málin en enginn þeirra lét sjá sig. Aðallega er þó ástæða þess að Ensími kom ekki fram sú að engin gæsla var á tónleikasvæðinu og því beinlínis um ólöglegan viðburð að ræða og hljómsveitin var ekki tilbúin til að taka þátt í þannig gjörning."

Í tilkynningunni segir að hljómsveitinni þyki mjög leitt að gestir hátíðarinnar hafi ekki fengið þá dagskrá sem þeir hafi verið búnir að greiða fyrir.

"Liðsmenn voru allir af vilja gerðir að fá jákvæða niðurstöðu með skipuleggjendum; með því að bæta úr aðbúnaði og fleiru svo tónleikarnir gætu farið fram, en eins og áður kom fram þá náðist ekki í skipuleggjendur og þeir létu svo ekki sjá sig eftir að hafa boðið komu sína á fund við listamenn. Við vonum að gestir hátíðarinnar sýni þessu skilning og erfi það ekki við okkur að þurfa að afboða," segir í tilkynningu Ensíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×