Innlent

"Íslenskri tónlistarmenningu til skammar"

Jóhannes Stefánsson skrifar
Nú gustar um Keflavík Music Festival.
Nú gustar um Keflavík Music Festival. Mynd/ Vilhjálmur

Hljómsveitin Skálmöld gaf út frá sér yfirlýsingu á Facebook síðu sinni nú fyrir skemmstu. Óhætt er að segja að hljómsveitin sé ósátt við tónleikahátíðina Keflavík Music Festival, en sveitin spilaði fyrir fámennu tjaldi í gærkvöldi.

Skálmöld segir hátíðina „í skásta falli dónaskapur og í verstu tilfellum glæpastarfsemi," enda feli framkoma tónleikahaldara og skipuleggjenda hennar í sér vanvirðingu og samningsbrot við ýmsa sem koma að hátíðinni.

Í yfirlýsingunni segir meðal annars: „Aðstandendur Keflavík Music Festival, nú hysjið þið upp um ykkur. Hátíðin ykkar er ónýt, fjöldi listamanna hafa afboðað komu sína, tækni-, veitinga- og gæslumál eru í fullkomnum ólestri og þið eruð því með falsaða vöru í höndunum. Það eina í stöðunni er að endurgreiða hátíðargestum aðgangseyrinn að fullu, gera upp við alla þá listamenn, starfsmenn og aðra sem eigi inni hjá ykkur og klára svo helgina eins vel mögulega hægt er. Sýnið af ykkur snefil af stórmennsku, takið skellinn af ykkar eigin klúðri og þá mögulega fáið þið annan séns í okkar bókum."

Fjörugar umræður hafa skapast á Facebook vegna yfirlýsingarinnar, en sitt sýnist hverjum um málið og sterkar skoðanir eru viðraðar í athugasemdunum. Margir taka upp hanskann fyrir hátíðina en aðrir bæta við ávirðingar Skálmaldar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×