Körfubolti

Stórleikur Jakobs og Hlyns ekki nóg fyrir Drekana

Jakob Örn var sjóðheitur í kvöld.
Jakob Örn var sjóðheitur í kvöld. mynd/valli
Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson báru lið Sundsvall Dragons á herðum sér í sænska körfuboltanum í kvöld. Stórleikur þeirra dugði því miður ekki til sigurs gegn Norrköping Dolphins.

Lokatölur 89-80 fyrir Höfrungana sem þar með náðu fjögurra stiga forskoti á  Drekana í baráttunni um þriðja sætið.

Jakob Örn skoraði 24 stig í leiknum og var stigahæstur í liði Sundsvall. Hann tók einig eitt frákast og gaf þrjár stoðsendingar.

Hlynur Bæringsson var næststigahæstur með 16 stig. Hlynur reif líka niður átta fráköst og gaf tvær stoðsendingar.

Ægir Þór Steinarsson skoraði tvö stig, tók þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×