Sport

Fanney hafnaði í fjórða sæti á HM

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fanney er hér til vinstri.
Fanney er hér til vinstri. Mynd/Heimasíða Grótta

Fanney Hauksdóttir, Gróttu, varð í fjórða sæti á HM unglinga í bekkpressu sem lauk í Kaunas í Litháen í gær.

Hún keppti í -63 kg flokki og lyfti 115 kg sem er metjöfnun. Hún var þó stutt frá verðlaunsæti en tveir keppendur skutust fram úr henni með 117,5 kg.

Sigurvegari mótsins, Yaragina frá Kasakstan, vann með nokkrum yfirburðum en hún lyfti 132,5 kg.

Þetta var fyrsta heimsmeistaramót Fanneyjar, sem er 21 árs gömul. Hún er Íslandsmeistari í greininni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×